Norsku krónprinshjónin afhenda umhverfisverðlaun Norðurlandaráðs 31. október
Kynnar verða leikarinn Kåre Conradi og tónlistarkonan Ingrid Bjørnov sem jafnframt munu setja tónlistarlegan blæ á hátíðina. Fram koma Stian Carsten, sem áður hefur verið tilnefndur til tónlistarverðlaunanna, ásamt Romkameratene, hiphop-stjarnan Jonas Benyoub, tónlistarkonan Kajsa Balto og Nasjonalballeten UNG sem mun flytja nýtt verk eftir Kumiko Hayakawa.
Þessi afhenda verðlaunin í ár:
Norðurlandaráð veitir ár hvert fimm verðlaun til þess að vekja athygli á bókmenntum, tónlist, kvikmyndum og nýskapandi aðgerðum á sviði umhverfismála þar sem sjónum verður að þessu sinni beint að umhverfislegum áskorunum textíliðnaðrins. Vinningshafarnir fá að launum verðlaunagripinn Norðurljós auk 300 þúsunda danskra króna.
- Umhverfisverðlaun Norðurlandaráðs: Krónprins Hákon og krónprinsessa Mette-Marit afhenda verðlaunin
- Tónlistarverðlaun Norðurlandaráðs: Tónlistarkonan Kajsa Balto afhendir verðlaunin
- Barna- og unglingabókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs: Rithöfundurinn Maja Lunde afhendir verðlaunin
- Kvikmyndaverðlaun Norðurlandaráðs: Leikkonan Maria Bonnevie afhendir verðlaunin
- Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs: Lubna Jaffery, menningarmálaráðherra Noregs, afhendir verðlaunin
Umhverfisverðlaunin beina sjónum að textíliðnaðinum
Að þessu sinni snúast umhverfisverðlaun Norðurlandaráðs um textíliðnaðinn og áskoranir hans í umhverfis- og loftslagsmálum. Verðlaunin verða veitt aðila sem stuðlar að kerfislegum breytingum á textíliðnaðinum fatanotkun í átt til sjálfbærrar þróunar.
Bein útsending frá verðlaunahátíðinni í öllum norrænu löndunum
Útsending hefst frá Norska óperu- og balletthúsinu kl. 18.30 (að íslenskum tíma) og verður hægt að fylgjast með henni á norden.org í öllum norrænu löndunum. Verðlaunaafhendingin verður einnig send út á NRK1 og hefst útsendingin kl. 19.00 að íslenskum tíma.
Fyrir fjölmiðla
Verðlaun Norðurlandaráðs 2023 verða afhent 31. október kl. 19.30 að norskum tíma (18.30 að íslenskum tíma) í Óperuhúsinu í Ósló. Strax að athöfninni lokinni verður hægt að taka myndir og viðtöl við verðlaunahafana. Eingöngu þeir blaðamenn sem skráðir eru á þing Norðurlandaráðs eiga tækifæri á að verða viðstaddir verðlaunaafhendinguna.
Blaðamenn þurfa að skrá sig í síðasta lagi 27. október kl. 14 að norskum tíma (12 að íslenskum tíma). Gilds blaðamannaskírteinis er krafist.
Verðlaun Norðurlandaráðs verða veitt í tengslum við 75. þing Norðurlandaráðs í Ósló dagana 30. október til 2. nóvember.